top of page
EinarAron2.png

EINAR ARON

Hæ! Ég heiti Einar Aron og er líklega yngsti atvinnu töframaður landsins. Ég legg mikla áherslu á að blanda húmor saman við flott töfrabrögð með það að leiðarljósi að áhorfandinn skemmti sér sem best. Þannig enda ég með flotta og skemmtilega töfrasýningu. 

​

Ég ábyrgist pottþétta skemmtun sem slær í gegn! Ef þú verður fyrir vonbrigðum vil ég vita það og endurgreiði í topp. Þú hefur því í raun engu að tapa.

15391378_10154497450354667_7306542681183251601_o.jpg

MEÐ GLEÐI AÐ LEIÐARLJÓSI

SÝNINGIN

Ég hef hef reynslu af öllum gerðum skemmtana, allt frá útihátíðum og brúðkaupum til barnaafmæla og elska að taka að mér ný og skemmtileg verkefni.

Ég er í raun ekki bara töframaður heldur líka eins konar uppistandari því mér finnst skipta meira máli að fólk hafi gaman en að sjá stórfengleg töfrabrögð. Ef gestirnir þínir hlæja og njóta sýningarinnar er markmiði mínu náð.

SKEMMTUN VIÐ ÖLL TILEFNI

Þú last rétt. V​IÐ ÖLL TILEFNI!

​

Í stórafmæli, vinnustaðaskemmtanir, barnaafmæli, í fordrykk eða standandi veislu, leik,- grunn- og framhaldsskóla, útihátíðir, brúðkaup, jarðarfarir og allt annið líka.

​

Til að bóka barnaafmæli, smellið HÉR.

Bóka
Heim

ÞAÐ SEM FÓLK SEGIR

Fékk Einar til að koma í surprise 30 ára afmæli! Sko ég á ennþá ekki orð. Þvílíkur fagmaður, ótrúlega fyndinn, með geggjaða nærveru og ótrúlega hæfileikaríkur töframaður.
Mæli 100% með Einari - það bara klikkar ekki.
Takk Einar fyrir geggjað show! 💥

TÖFRI TÖFRI

bottom of page